Lýsing

1-2 skór

12. september, laugardagur

Brottför kl. 10  á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Una Þ. Sigurðardóttir


Gengið frá bílastæðinu efst á Víkurskarði og norður Gæsadal að Gæsagili. Sama leið farin til baka.


Vegalend: 10–15 km. Gönguhækkun: 230 m.


Verð: 2.200 / 3.900 kr.  Innifalið: Fararstjórn.

Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.



Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Gönguferðir: 1 skór

    Léttar og stuttar ferðir: Stuttar dagleiðir, 4 - 6 klst. Mest gengið á sléttlendi. Engar eða litlar ár. Léttur dagpoki. Flestum fært.



    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir skór sem ætlaðir eru til dagsferða og jafnvel göngustafir.

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi, verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, húfa, vettlingar, hlífðarföt og regnföt

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (einnig göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar og buff